ég ætla að blogga aðeins um tvo snilldar tónlistarmenn sem að
eru farnir frá. Annars vegar Roger Kieth "Syd" Barret(Janúar
6, 1946 – Júlí 7, 2006) og hinsvegar John Henry "Bonzo"
Bonham(Mai 31, 1948 – September 25, 1980),
John Henry Bonham:
....John Henry Bonham...fæddist 31.maí 1948...en hann byrjaði fyrst
að tromma 5 ára gamall með því að nota potta og önnur
heimilisáhöld, hann fékk sitt fyrsta trommusett 14 ára gamall sem
að var Premier Percussion.....árið 1964 gekk hann í fyrsta "bandið"
sitt sem að hét "Terry Webb and the Spiders" þar sem að hann
kynntist konuni sinni Pat Phillips.
Hann spilaði auk þess með "The Blue Star Trio" og "The Senators"
sem að gáfu út þokkalega frægt "single" "She\'s a Mod". Bonham naut
þess að spila á trommur og ákvað að gera það að framtíðar starfi.
Síðar gekk hann í hljómsveit sem að hét "A Way of Life" en hún var
frekar ó "aktív".....í brýnni peninga nauðsýn gekk hann í
hljómsveit sem að hét "Crawling King Snakes" sem að hafði þann unga
söngvara Robert Plant sem að allir ættu að þekkja.
Á þeim tímum varð hann frægur fyrir að vera háværasti trommari í
Englandi, oft brjótandi trommukjuða jafnt sem trommur og beðin um
að hætta að spila á klúbbum þar sem að hann væri of hávær, Bonham
var einu sinni rekin úr studíoi af eiganda þess sökum þess að hann
var með of mikill læti fyrir hans smekk, honum var sagt að það væri
engin framtíð fyrir jafn háværan trommara og hann.....Tíu árum
seinna fékk eigandi studíósins bréf sem að stóð í "Thanks for the
career advice..."; í fylgd með gullplötu frá Led Zeppelin, já fyrir
þá sem ekki vissu þá var John Bonham trommari Led Zeppelins.
Síðar gekk hann í "Band of Joy" með Robert Plant en
´hljómsveitin gaf út mörg demo en enga diska, á meðan á þessum
tímum stóð var hann orðin tiltölulega frægur og buðu margir honum
pláss í hljómsveitum sínum meðal annars Joe Cocker, Chris Farlowe
og Tim Rose.
Þegar að Jimmy Page ákvað að leita sér af nýjum meðlimum í mjög
fræga hljómsveit "The Yardbirds" að nafni (sem að Eric Clapton og
Jeff Beck voru í meðal annars) hafði hann heyrt um ungan blús
söngvara sem að var Robert Plant, og fékk hann í stöðunna og mældi
hann með John Bonham sem trommara. Síðar gekk John Paul Jones í
bandið sem bassaleikari. Hljómsveitin fékk nafnið "The New
Yardbirds" og byrjaði strax að túra. Síðar fékk hljómsveitin nafnið
Led Zeppelin sem að komið er frá Keith Moon úr The Who...en hann
sagði að nafnið "The New Yardbirds" myndi "go down \'like a lead
zeppelin\'" og breyttu þeir því nafninu í "Led Zeppelin"
Síðan tók við langur ferill með þeim hjá Bonham og gáfu þeir út 8
plötur þar af eina tvöfalda og eina plötu eftir dauða John\'s sem
að heitir Coda....John Bonham dó sökum þess að kafna úr eigin ælu
inná hótelherbergi eftir langa nótt af mikilli drykkju....og hætti
því Led Zeppelin.

John Bonham.
Roger Kieth "Syd" Barret
Syd Barret fæddist 1946 í Cambridge í Englandi og er best þekktur
fyrir það að vera ein af stofnendum bresku hljómsveitarinar Pink
Floyd....sveitin sjálf sem að hét upprunalega "The Tea Set", "The
Abdabs," "The Screaming Abdabs," og "The Megadeaths" áður en
að hann gekk í hana skippaði Bob Klose, Roger Waters, Nick Mason og
Rick Wright....Syd gekk í hljómsveitina og breytti nafninu sökum
þess að önnur hljómsveit bara sama nafn...Nýja nafnið varð The Pink
Floyd Sound skýrð eftir tveim blús tónlistarmönnum Pink
Anderson og Floyd Council....seinna varð nafnið af Pink
Floyd.....í fyrstu spilaði hljómsveitin gömul R&B(Rhythm and
Blues) lög en fluttist fljót yfir í "psychedelic"(Skynörvandi)
rokk með mikið af spuna spili og útúr space-uðum gítarsólóum.
Bob Klose sem að var mikill jazz maður hætti frekar snemma, til að
snúa sér að því að vinna við Myndatöku, rétt áður en upptökur
hófust. Eftir það voru fjórir eftir Barret á gítar, Roger á bassa,
Mason á trommum og Wright á hljómborði....fyrsta stúdíó plata Pink
Floyds ber nafnið "Piper at the Gates of Dawn" og kom hún út árið
1967...og voru flestir textar skrifaðir af Barret..platan náði
sjötta sæti breska listans en einungis 131 sæti bandaríska....á
þessum tímum "túruðu" þeir með Jimi Hendrix sem að hjálpaði til við
að byggja upp frægð.
Smám saman fór Syd Barret að hranka sökum mikillar eiturlyfjafíknar
og gat einfaldlega ekki spilað lengur...þá bættist við nýr meðlimur
í hljómsveitina David Gilmour sem að spilaði á gítar og söng..því
Barret gerði ekki mikið meirra en að stara útí loftið og de-tuna
hljóðfærið sitt....hann var síðan rekin úr hljómsveitinni sökum of
mikillar neyslu af LSD og fyrir það að geta ekki lengur
spilað....
Eftir að hann hætti í hljómsveitinni...tók við stuttur sólóferill
með 2 stúdíó plötum "The Madcap Laughs" og "Barret"...eftir
þetta snéri hann aftur heim til sín til að taka upp á því að mála
að nýju....
Barret lést 7 júlí í þessum mánuði sökum sykursýkis sem að
hrjáði hann. Hann var 60 ára að aldri...

Syd Barret
Lög Dagsins eru að þessu sinni nokkur..
Pink Floyd: Interstellar
Overdrive
Pink Floyd:
Time
Pink Floyd: Wish You Where
Here
Pink Floyd: See Emily
Play
Og mitt uppáhalds lag með Pink Floyd: The
Great Gig In The Sky
Led Zeppelin:
Moby Dick
Led Zeppelin: Bonzo\'s Montreux
Led Zeppelin: When The Levee
Breaks
Og síðasta lagið er Led Zeppelin:
The Ocean
Time:
Ticking away the moments that make up a dull
day
You fritter and waste the hours in an off-hand way
Kicking around on a piece of ground in your home town
Waiting for someone or something to show you the way
Tired of lying in the sunshine staying home to watch the rain
You are young and life is long and there is time to kill today
And then the one day you find ten years have got behind you
No one told you when to run, you missed the starting gun
And you run and you run to catch up with the sun, but it\'s
sinking
And racing around to come up behind you again
The sun is the same in the relative way, but you\'re older
And shorter of breath and one day closer to death
Every year is getting shorter, never seem to find the time
Plans that either come to naught or half a page of scribbled
lines
Hanging on in quiet desparation in the English way
The time is gone the song is over, thought I\'d something more to
say
Kveð að sinni...friður!!